Keano.... We love you!

Kynþokki mælist í Roy Keane

12.09.2006 11:46:07 / Keano78

3 dagar

Niðurtalningin er hafin, fer til Mekka á föstudaginn og kem til með að horfa á draumaliðið snýta sér á asnaval um helgina. Eru annars ekki allir orðnir miklir Sunderland aðdáendur?

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 23:53:43 / Keano78

Góðan Daginn

Ég er nú bara að kasta hérna inn orðum til þess að sjá hvort að fólk taki eftir nýrri færslu. Mér finnst ég samt duglegur, ekki nema 7 mánuðir síðan síðasta færsla kom inn! Hehe... haldiði áfram að vera svona dugleg að kíkja! Aldrei að vita nema maður fari nú að gera eitthvað úr þessu....

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 14:11:46 / Keano78

Burton's (Homeblest kex og fleira)

Þetta hafðist gegn stórliði Burton, enda Rossi litli í banastuði með 2 mörk og lagði 2 upp ( þó svo að netmiðlar segi hann bara hafa lagt upp 1 stk.). Saha var frábær í leiknum :S , hann skoraði fyrsta markið í leiknum en lét það nægja þrátt fyrir 3 dauðafæri en nei nei  1 mark nægir honum. Svo hefur frést af slagsmálum innan liðsins þar sem Ruud og Ronaldo voru að skiptast á skoðunum! Það þarf reglulega að hrista liðið saman......

Annars er ég bara heima í smá pabbaleik í tvær vikur og við feðginin skiptumst bara á að borða og kúka.......

Í kvöld er svo stefnan sett á herrakvöld Fjölnis að beiðni tengdó sem finnst maður greinilega ekki nógu duglegur við drykkju!

Lifið heil...........


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 14:59:53 / Keano78

Erum við ekki að grínast með þetta!!

3-1 !:cry:   Þetta er nú meira ruglið. Þessi meðallið í deildinn eru farin að nota leiki á móti United til þess að rífa sig upp úr lægðum og lélegu formi! Hvaða heilbrigði stjóri tekur Wes litla Brown, sem hefur átt hvern stjörnuleikinn á fætur öðrum, út úr liðinu fyrir nýjan bakvörð sem sést ekki eða mjög þreyttan og greinilega þreyttan Silvestre sem gerir lítið annað en að snúast á hringi án þess að vita neitt um það hvar hann eða mótherjar eru staddir!!!  :evil:   Ég er brjálaður......................

Aumingja John O'shea, þessi fíni varnarmaður, er látinn spila á miðjunni trekk í trekk en nei nei .......   kaupum bara fleiri varnarmenn bara til þess eins að eiga yfirdrifið nóg af þeim svo þeir geti nú örugglega farið í fýlu yfir því að spiæa ekki reglulega! Við skulum alls ekki kaupa okkur miðjumenn svo við getum örugglega bara notað alla þessa varnarmenn líka á miðjunni.8|  Þvílíkt rugl!  Ég er ennþá brjálaður.............

Bless


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 15:57:01 / Keano78

Vá hvað ég er duglegur að skrifa!

Jæja gott fólk... Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að skrifa örlítið í tilefni þess að það er kominn mánuður síðan síðast! Af okkur litlu fjölskyldunni er allt gott að frétta, enda prinsessan orðin 7 mánaða gömul! Þetta er ekki lengi að gerast!

United er örlítið að rétta úr kútnum enda þurfum við ekki lengur að hafa áhyggjur af litlu evrópukeppninni lengur heldur einbeitum okkur að því að ná jafnteflum í öllum öðrum keppnum :lol:    Neinei... ég er löngu hættur að vera svartsýnn enda bjart framundan með hækkandi sól og tveimur nýjum varnarmönnum ( Hélt að okkur vantaði á miðjuna eftir að kóngurinn hvarf í græna og hvíta treyju).

En.... hvað finnst ykkur um DV? Er þetta lágkúrulegasta sorprit sem finnst eða brýn nauðsyn í þjóðfélag á niðurleið!?? Farið nú á þessa síðu ef ykkur blöskrar og skrifið undir! www.deiglan.com/askorun .

Hafið það gott í bili,  áfram United (og Celtic)


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 13:26:14 / Keano78

Ohhhh......

Jájá..... nú sér gamla karluglan hvað gerist þegar Keano er látinn fara!!  Að komast ekki upp úr riðlakeppninni er bara djók og hvað þá að skora 3 mörk í 6 leikjum!

Ég ætla rétt að vona að kallinn fari að segja upp ( vil ekki að hann verði rekinn) á næstu dögum og hleypi ferskum straumum á Old Trafford. Hann er búinn að gera sitt og vel það.....

.... En við erum þó enn inni í deildarbikarnum!!! :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 10:11:20 / Keano78

Geriði þessa könnun!

Gerið þessa könnun fyrir mig,  þetta er voða fljótlegt um jólamatinn. Þetta er verkefni hjá Svenna í háskólanum.

http://www.sverrir.org/konnun.php


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.11.2005 19:32:07 / Keano78

Bryan Robson um eina fyrrverandi Liverpool stelpu!


Jason wouldn't have much of a career as a boxer, going down from a blow like that!
- Bryan Robson um olnbogaskotið sem Roy Keane gaf Jason McAteer



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.11.2005 12:38:29 / Keano78

Brjálað að gera!!

Jahæja.... allir saman, finnst ykkur ég ekki duglegur að skrifa? Þetta horfir til vandræða þar sem að ég hef voða lítið að segja annað en það að ég sakna þess að vita af Keano í rauðri treyju! Það stefnir nú allt í að hann spili framvegis í hvítri og grænni peysu fyrir rauðhærða villinginn hann Gordon Strachan.

                   

...Hvað um það, hafiði það gott og áfram United (það sem eftir er af þeim) í kvöld!!:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 12:35:48 / Keano78

18. Nóvember er dagur sorgarinnar!

Ég hvet alla til að flagga í hálfa stöng. Roy Keane er farinn frá Man. Utd.

Hafið mig afsakaðan á meðan ég græt....

Lengi lifi Keano


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 12:28:53 / Keano78

Loksins orðinn 21 árs!!

...þá er nú stórri helgi lokið þar sem ég og Gaui áttum báðir afmæli (lau og sun). Héldum í miðbæinn á laugardagskvöld með stórdjamm í huga en það er svo merkilegt að þetta er ekki lengur jafn gaman og þegar við vorum aðeins yngri!

Ég náði mér nú fljótt á sunnudag en Gaui greyið er enn fárveikur! Hahahaha.......

England lagði líka Argentínu í mjög góðum landsleik nú á laugardaginn þar sem að Rooney vinur minn var auðvitað allt í öllu. Þetta sýnir að þó að menn séu ekki kannski jafn snoppufríðir og Keano sjálfur þá er smá séns að skara fram úr og njóta mikillar kvenhylli ef vel er að verki staðið á knattspyrnuvellinum!

Svo vil ég benda fólki á að GESTABÓK er ekki bara eitthvað til að skoða..... því ef þið skrifið ekki í hana þá er voða lítið að skoða!!!!!!:klikk:


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 16:55:05 / Keano78

Við erum mættir!

Velkomin(n)

Til að fagna stórsigri okkar á smáliði chel$ki hef ég ákveðið að opna auðmjúka síðu tileinkaða hinu eina sanna fallega knattspyrnufélagi sem þekkt er undir kenniheitinu.....

                     ManchesterUnited                        


» 8 hafa sagt sína skoðun